Virkni er forsenda heilsu
Ef ekkert gerist, gerist ekkert. Hið umdeilda ljóðskáld, Charles Bukowski sagði:
Við getum ekki alltaf beðið eftir því að lífið leiði okkur á einhvern stað. Langanir okkar, þarfir og draumar eru afleiðing gjörða okkar. Ef maður gerir ekkert, gerist ekkert. En það þýðir vissulega samt ekki að við þurfum alltaf að vera virk — stundum er gott að draga sig í hlé og njóta einveru og slökunar. En ef þessi hegðun er ríkjandi í lífinu okkar þurfum við að fara að auka virknina.
En af hverju aukin virkni?
Ein mikilvægasta ástæðan er að virkni er verndandi þáttur gegn þunglyndi. Rannsóknir hafa sýnt að aukin virkni bætir líðan. Sú virkni sem bætir líðan skiptist gróflega í tvo flokka:
1. Vellíðanarathafnir — Hlutir sem veita ánægju, t.d. að hlusta á góða tónlist, fara í heitt bað eða láta nudda sig.
2. Afreksathafnir — Hlutir sem vekja upp stoltu og tilfinninguna um að hafa náð einhverju, t.d. að þrífa, læra heima eða klára verkefni.
Önnur ástæða er sú staðreynd að aukin virkni gerir mann orkumeiri. Það hljómar eins og þversögn en þegar maður er aðgerðarlaus lengi fer líkaminn á orkusparandi stillingu. Aðgerðarleysi gerir mann þreyttan og þreytan gerir mann aðgerðarlausan — og þar af leiðandi getur aukin virkni komið í veg fyrir þennan vítahring.
Gróflega má skipta þreytu upp í fjóra flokka:
Til að greina á milli er mikilvægt að vera gagnrýnin á eigin upplifanir — spyrja sig hvaða áhrif ákveðin viðbrögð hafa til lengri tíma.
Leiðir til að auka virkni
Setja markmið
Bæði skammtíma og langtíma markmið auka líkur á að eitthvað verði framkvæmt. Hægt er að styðjast við SMART markmið. Í lok hvers dags getur verið gott að setja að minnsta kosti eitt einfalt markmið fyrir daginn eftir — t.d.: Á morgun klukkan 16:00 ætla ég að fara með dósirnar í endurvinnslu.
Fimm mínútna reglan
Þessa reglu má rekja til sálfræðingsins Christine Padesky. Í hvert skipti sem við nennum ekki að gera eitthvað er gott að muna að við nennum oft ekki að byrja — en ef við náum að byrja er ekkert mál að fylgja verkinu eftir. Þess vegna er gott að segja við sig: "Ég skal gera þetta í 5 mínútur, ef ég hrekk ekki í gírinn má ég hætta án samviskubits."
Skipulag
Skipulögð virkni getur verið að skrifa niður stað og stund sem eitthvað fer fram. Þegar við stöndum frammi fyrir verkefni sem virðist óyfirstíganlegt er gott að skrifa niður skrefin og gera eitt í einu. Ef mörg verkefni eru hangandi yfir manni getur hjálpað að flokka þau með Eisenhower boxi.
Grípa og endurmeta hamlandi hugsanir
Bæði hugræn atferlismeðferð og stóuspeki byggja á því að hugsanir okkar stýra viðbrögðum okkar. Hér eru algengar hamlandi hugsanir og endurmat á þeim:
| Hamlandi hugsun | Endurmat |
|---|---|
| "Ég nenni þessu ekki" | Oft nennum við ekki en þurfum þess. Ímyndaðu þér hversu vel þér mun líða þegar þú ert búinn. Þú getur jafnvel verðlaunað þér fyrir að nenna. |
| "Ég er ekki í réttu skapi" | Það er ekki til skap fyrir allar athafnir. Skap og áhugi vaknar stundum eftir að maður fer í verkið. |
| "Ég kann þetta ekki" | Það er ekki afsökun til að sleppa því. Getur þú fundið leiðbeiningar eða beðið einhvern um hjálp? |
| "Þetta tekur of langan tíma" | Þá er gott að skipuleggja sig og brjóta verkið upp í smærri hluta. Byrjaðu á fyrsta hlutanum strax. |
| "Þetta er óþarfi" | Stundum finnst okkur verk óþörf en þörfin kemur í ljós þegar betur er skoðað — kannski er þörfin fyrir einhvern annan. |
| "Þetta er of mikið fyrir mig" | Reyndu að fá aðstoð. Eins er gott að spyrja sig gagnrýnið hvort verkið sé raunverulega of mikið. |
| "Einhver annar á að gera þetta" | Ræddu við viðkomandi. Skoðaðu líka með gagnrýnum hætti hvort þetta sé raunverulega verk einhvers annars. |
| "Þetta er tilgangslaust" | Skrifaðu niður þá kosti sem fylgja því að klára verkið — oft eru þeir fleiri en gallarnir. |
| "Ég ætti að eyða tímanum í eitthvað annað" | Stundum er þetta rétt — en þá er mikilvægt að gera það "eitthvað annað." Ef þú ert að nota þetta sem afsökun, taktu stökkið og drífðu verkið af. |
Öll virkni er betri en engin. Sama hvort það er smátt eða stórt — ef við blöndum saman forvitni og elju og framkvæmum stöðugar virknitilraunir mun lífið leiða okkur í ótrúlegustu áttir.